... öll verk nema góðverk
auka heilabrot og leiðindi ...

þjónustan

firmamerki

Góðverk hannar firma- og vörumerki og sér um samræmingu á heildarútliti fyrirtækja, prentuðum og rafrænum. Fyrirtæki eiga að gera miklar kröfur um útlit og viðmót. Merki fyrirtækis er andlit þess, það sem viðskiptavinurinn festir fyrst í minni. Okkar markmið er tímalaus hönnun sem hvílir á traustum grunni og skilar viðskiptavinum árangri. 

umbrot og prent

Hönnun og umbrot prentgripa af ýmsu tagi leikur í höndunum á okkur: Bækur, dagblöð, tímarit, bæklingar og ársskýrslur svo dæmi séu tekin. Ekkert verkefni er of einfalt, ekkert of flókið. Við sjáum um öll samskipti við prentsmiðjur og finnum hagkvæmustu lausnina hverju sinni. Við vinnum með þér við að koma efni þínu til skila á skýran og vandaðan hátt.

auglýsingar

Góðverk hefur frá upphafi séð um auglýsingar og annað kynningarefni, hvort sem er fyrir prentun, vefi eða stafræna miðlun. Markmiðið hlýtur alltaf að vera vandað, hnitmiðað og athyglisvert efni sem hittir í mark, nær athygli fólks.

vefir

Góðverk sinnir allri vefsmíði hvernig svo sem hún er skilgreind. Við leitumst við að hanna aðgengilega og notendavæna vefi án þess þó að slá af kröfum um útlit og nýjungagirni. Við erum í samvinnu við fyrirtæki sem bjóða margvíslegar lausnir varðandi uppfærslur og viðhald á vefum. 

ljósmyndun

Hvort sem um er að ræða ljósmyndun af fólki, hlutum, mannvirkjum, náttúru eða landslagi, erum við klár í slaginn. Fyrir prentun eða netið. Í lit eða gráskala. Þitt er valið.

textagerð

Þeim skilaboðum og hugmyndum sem ætlað er að nota í markaðsstarfi þarf að koma í orð. Við sinnum hvers lags textaskrifum og textalagfæringum ásamt því að taka að okkur prófarkalestur. Lykilatriðið er góð tilfinning fyrir kjarnyrtu íslensku máli og stafsetningu.

um góðverk

Góðverk varð til 19/11/1999 og byggði á áralangri reynslu af útgáfu- og auglýsingamarkaðnum. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að vera í fararbroddi og veita alhliða þjónustu sem hvílir á faglegum grunni og skilar viðskiptavinum sýnilegum árangri. Við höfum ávallt vandað til verka og verið sanngjarnir í verði. Áhersla er lögð á góð samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila.

… gerðu kröfur, gerðu Góðverk

traustir
viðskiptavinir

hafa samband

Mjög auðvelt er að ná sambandi við okkur, jafnvel þó að við leggjum alla áherslu á samskipti upp á gamla mátann.

898 3699

Scroll to Top